Tire Sales Consultant

InchcapeIcelandOn-siteFull-timeSenior, 5–8 yearsListed 1 hour ago

Apply now

About this role

Þjónustu- og sölumaður

Við leitum að jákvæðum og drífandi þjónustu- og sölumanni til að sinna sölu á dekkjum og tengdum vörum til einstaklinga og fyrirtækja. Um er að ræða fjölbreytt og spennandi starf með sérstakri áherslu á dekk fyrir vörubíla, stærri vélar og tæki. Starfið felur í sér ráðgjöf og sölu til viðskiptavina, uppbyggingu og viðhald viðskiptasambanda og virka þátttöku í áframhaldandi vexti fyrirtækisins. Starfsstöð er hjá Dekkjahöllinni í Miðhrauni.

Við leitum að metnaðarfullum einstaklingi með brennandi áhuga á bílum og tækjum sem hefur þjónustulund og góð samskiptafærni.

Dekkjahöllin er eitt öflugasta dekkjafyrirtæki landsins og hefur verið á meðal Framúrskarandi fyrirtækja Creditinfo í 15 ár í röð. Fyrirtækið er umboðsaðili leiðandi framleiðenda á borð við Continental, Yokohama og Falken.

Móðurfélag Dekkjahallarinnar er Inchcape á Íslandi sem er hluti af alþjóðlega fyrirtækinu Inchcape Plc sem sérhæfir sig í sölu og dreifingu á bifreiðum og er skráð í kauphöllina í London. Inchcape sem er leiðandi fyrirtæki á sínu sviði starfar á 38 mörkuðum með yfir 16.000 starfsmenn og vinnur með stærstu bílaframleiðendum heims. Starfsmenn félaganna eru um 250 talsins.

Helstu verkefni og ábyrgð

- Sala til fyrirtækja og einstaklinga

- Símsvörun og tilboðsgerð

- Móttaka viðskiptavina og úthlutun verkefna

- Afgreiðsla og móttaka pantana

- Umsjón með daglegri þjónustu við viðskiptavini

- Önnur verkefni

Menntunar- og hæfniskröfur

- Reynsla af sölu og/eða þjónustu er kostur

- Reynsla úr dekkjageira eða sambærilegu starfi er kostur

- Góð þekking og áhugi á vörum og þjónustu

- Góð tölvukunnátta

- Góð íslensku- og enskukunnátta

- Góð hæfni í mannlegum samskiptum

- Þjónustulund og jákvætt viðhorf

- Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð

Af hverju að vinna með okkur?

- Vertu hluti af hratt vaxandi, alþjóðlegu fyrirtæki með þekkt bílamerki

- Starfaðu með stuðningsríku og samvinnuþýðu teymi sem leggur áherslu á nýsköpun, fjölbreytileika og faglegt vinnuumhverfi

- Tækifæri til að þróa feril þinn innan alþjóðlegs fyrirtækis

Um framtíðarstarf er að ræða. Nánari upplýsingar um starfið veitir Reynir Stefánsson, [email protected]