Renniverkstæði - Lagerstarf

ÖssurReykjavík, Capital RegionOn-siteFull-timeNew grad, 0–1 yearsListed 1 week ago

Apply now

About this role

Langar þig að vera hluti af öflugu og spennandi teymi innan stoðtækjaframleiðslu Össurar?

Össur leitar að öflugum og metnaðarfullum aðila í starf á lager fyrir renniverkstæði.

Viðkomandi mun starfa við móttöku, meðhöndlun og afhendingu á hráefni á lager og því er nauðsynlegt að viðkomandi sé sjálfstæður í vinnubrögðum, með góða samskiptahæfni.

Við leitum að jákvæðum og drífandi einstaklingi sem er til í að vera góður liðsfélagi og ganga í öll verkefni sem þörf er á hverju sinni.

Hjá Össur starfar fjölbreyttur hópur fólks og hvetjum við öll sem uppfylla hæfnikröfur og hafa áhuga á starfinu til að sækja um, óháð kyni.

Umsóknarfrestur til og með 9. nóvember 2026.

Helstu verkefni og ábyrgð

- Móttaka á hráefni
- Samantekt og meðhöndlun á hráefni
- Önnur tilfallandi verkefni tengd lager

Menntunar- og hæfniskröfur

- Reynsla af lagerstörfum er æskileg
- Reynsla af birgðarhaldi er kostur
- Lyftarapróf er kostur
- Almenn tölvukunnátta, þekking á BC/Navision er kostur
- Þjónustulund, jákvæðni og góð samskiptahæfni
- Skipulagshæfni þarf að vera góð
- Frumkvæði og hæfni til að starfa bæði sjálfstætt og í teymi
- Góð íslenskukunnátta í ræðu og riti er skilyrði