About this role
Mótaðu framtíðina
Sem starfsmaður Alcoa gegnir þú mikilvægu hlutverki í að skapa verðmæti og nýta tækifæri til árangurs. Hjá okkur er sérhver starfsmaður liðsmaður, hugmyndasmiður og þátttakandi í að móta framtíðina.
Upplýsingatæknisérfræðingur
Við leitum að hæfileikaríkum upplýsingatæknisérfræðingi í iðnstýringum til starfa í framleiðsluþróunar- og upplýsingatækniteymi Alcoa Fjarðaáls. Í teyminu vinnur fjölbreyttur hópur sérfræðinga í straumlínustjórnun, verkefnastjórnun og upplýsingatækni að stöðugri þróun á framleiðslu fyrirtækisins.
Ábyrgðarsvið:
- Stefnumótandi vinna við innleiðingu á iðnstýringum og skjámyndakerfum framleiðslu
- Verkefnastjórnun við þróun nýrrar virkni og nýrra kerfa
- Rekstur iðnstýringa
- Umsjón með högun iðnstýringa
- Skýrslugerð og úrvinnsla gagna
- Ráðgjöf og þjónusta við notendur
Hæfnikröfur:
- B.Sc. í rafmagnsverkfræði, vélaverkfræði, hátækniverkfræði eða sambærilegt nám
- Reynsla af vinnu í iðnstýringum og skjámyndakerfum
- Menntun og/eða reynsla á sviði verkefnastjórnunar er kostur
- Greiningarhæfileikar, frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð
- Miklir samskiptahæfileikar og þjónustulund
- Góð enskukunnátta
Alcoa Fjarðaál er stór og lifandi vinnustaður sem aldrei sefur. Saman sköpum við útflutningsverðmæti á öruggan og ábyrgan hátt, allan sólarhringinn, alla daga ársins. Alcoa Fjarðaál býður samkeppnishæf laun og minni vinnuskyldu en almennt þekkist og er aðbúnaður starfsmanna til fyrirmyndar. Öryggi og heilbrigði eru ávallt forgangsmál á vinnustaðnum og tækifæri til þjálfunar, menntunar og starfsþróunar eru mikil.
Gildi Alcoa eru heilindi, árangur, umhyggja og hugrekki.
Frekari upplýsingar um starfið veitir Anna Kristmundsdóttir, sérfræðingur í ráðningum í gegnum netfangið [email protected] .
Við erum gildisdrifin, knúin framtíðarsýn og sameinuð af tilgangi okkar að nýta tækifærin til að ná árangri. Skuldbindingar okkar varðandi þátttöku, fjölbreytni og jöfnuð fela í sér að bjóða upp á trausta vinnustaði þar sem öryggi og virðing eru í heiðri höfð og allir einstaklingar eru án aðgreiningar, lausir við mismunun, einelti og áreitni og að vinnustaðir okkar endurspegli fjölbreytileika samfélaganna sem við störfum í.
Í samræmi við jafnréttisstefnu Alcoa Fjarðaáls og lög nr. 150/2020 eru einstaklingar af öllum kynjum hvattir til að sækja um.
Hægt er að sækja um starfið á Alcoa.is .
Umsóknarfrestur er til og með 17. nóvember
______________________________________________________________________________
IT Application Senior Analyst
We are looking for a talented IT Application Senior Analyst to join the Production Development and Information Technology team at Alcoa Fjarðaál. The team consists of a diverse group of specialists in process optimization, project management and information technology, working together on the continuous development of the company’s production processes.
Responsibilities:
- Strategic work related to the implementation of industrial control systems and production visualization systems
- Project management for the development of new functionality and new systems
- Operation and maintenance of industrial control systems
- Management of industrial control system architecture
- Reporting and data analysis
- Advice and support for users
Qualifications:
- B.Sc. in Electrical Engineering, Mechanical Engineering, Mechatronics Engineering or a comparable field of study
- Experience working with industrial control systems and visualization systems
- Education and/or experience in project management is an advantage
- Strong analytical skills, initiative and the ability to work independently
- Strong communication skills and a service-oriented mindset
- Good command of English
Alcoa Fjarðaál is a large and vibrant workplace that operates around the clock. We work together to create export value in a safe and responsible manner, 24 hours a day, every day of the year. Alcoa Fjarðaál offers competitive wages, manageable work schedules, and excellent staff facilities. Safety and health are always our top priorities, and we provide ample opportunities for training, education, and professional development.
Alcoa's values are integrity, excellence, care, and courage.
More information is available from Anna Kristmundsdóttir, talent acquisition specialist by email [email protected] .
We are values led, vision driven and united by our purpose of transforming raw potential into real progress. Our commitments to Inclusion, Diversity & Equity include providing trusting workplaces that are safe, respectful and inclusive of all individuals, free from discrimination, bullying and harassment and that our workplaces reflect the diversity of the communities in which we operate.
Following Alcoa Fjarðaál’s Equal Employment Opportunity Policy and the Icelandic Gender Equality Act No. 150/2020, individuals of all genders are encouraged to apply.
For applications, please refer to Alcoa.is .
The application deadline is up to and including, 17. November
Um starfsstöðina
Álver Alcoa Fjarðaáls á Reyðarfirði er eitt nútímalegasta og tæknivæddasta álver í heimi, og það er til fyrirmyndar hvað varðar umhverfisvernd. Álver Fjarðaáls er það stærsta á Íslandi með framleiðslugetu allt að 360.000 tonn af áli á ári. Starfsmenn okkar vinna saman að því að skapa heilbrigða vinnustaðamenningu og fjölskylduvænt vinnuumhverfi með áherslu á náið samstarf við nærsamfélagið og hagsmunaaðila.
Við erum gildisdrifin, knúin framtíðarsýn og sameinuð af tilgangi okkar að að nýta tækifærin til að ná árangri. Skuldbindingar okkar varðandi þátttöku, fjölbreytni og jöfnuð fela í sér að bjóða upp á trausta vinnustaði þar sem öryggi og virðing eru í heiðri höfð og allir einstaklingar eru án aðgreiningar, lausir við mismunun, einelti og áreitni og að vinnustaðir okkar endurspegli fjölbreytileika samfélaganna sem við störfum í. Í samræmi við jafnréttisstefnu Alcoa Fjarðaáls og lög nr. 150/2020 eru einstaklingar af öllum kynjum hvattir til að sækja um.
Þetta er staður þar sem þú hefur vald til að gera þitt besta, vera þú sjálf/ur sjálf og upplifa sanna tilfinningu fyrir því að tilheyra. Slástu í hópinn og mótaðu starfsferil þinn með okkur!
Vinnan þín. Veröldin þín. Mótaðu þau til betri vegar.