About this role
JBT Marel leitar að kraftmiklum og jákvæðum liðsfélögum til starfa á lager. Starfið er fjölbreytt og felur meðal annars í sér móttöku á vörum frá birgjum, tiltekt og afgreiðslu pantana ásamt öðrum verkefnum sem tengjast daglegum rekstri lagersins.
Við bjóðum upp á fyrsta flokks starfsumhverfi þar sem öryggi, góð liðsheild, samvinna og stöðugar umbætur eru í fyrirrúmi.
Helstu verkefni
- Móttaka og frágangur vara frá birgjum
- Tiltekt og afgreiðsla pantana
- Skráning og meðhöndlun vara í vöruhúsakerfi
- Önnur verkefni tengd daglegum rekstri lagersins
- Þátttaka í stöðugum umbótum
Hæfniskröfur
- Nákvæm, jákvæð og lausnamiðuð vinnubrögð
- Góð samskiptahæfni og áhugi á teymisvinnu
- Frumkvæði, þjónustulund og metnaður
- Hæfni til að vinna samkvæmt skilgreindum ferlum
- Góð enskukunnátta
- Íslenskukunnátta er kostur
- Reynsla af lagerstörfum er kostur
- Lyftararéttindi eru kostur
Við hvetjum öll áhugasöm, óháð kyni og bakgrunni, til að sækja um starfið.
Umsóknarfrestur er til og með 4. nóvember . Unnið verður úr umsóknum jafnóðum og þær berast og því hvetjum við áhugasöm til að sækja um sem fyrst.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Hreinn Ingi Örnólfsson í netfanginu [email protected] .
Sótt er um starfið á heimasíðu JBT Marel.