About this role
Langar þig að þróast í starfi, byggja upp þekkingu og reynslu og vera hluti af öflugu og góðu teymi?
Hjá Inchcape á Íslandi verður þú hluti af alþjóðlegu fyrirtæki. Við vinnum með nokkur af fremstu vörumerkjum í bílaiðnaðinum og leggjum áherslu á að veita framúrskarandi þjónustu til viðskiptavina.
Sem þjónusturáðgjafi hjá Öskju munt þú gegna lykilhlutverki í samskiptum við viðskiptavini Kia, Honda og Xpeng. Starfið felur í sér ráðgjöf, þjónustu og samvinnu við verkstæði þar sem markmiðið er að tryggja framúrskarandi upplifun viðskiptavina á öllum stigum þjónustuferlisins.
Þú verður hluti af öflugu þjónustuteymi sem leggur áherslu á fagmennsku, samstarf og lausnamiðaða þjónustu. Starfið er fjölbreytt og hentar einstaklingi sem hefur gaman af mannlegum samskiptum, getur unnið undir álagi og leggur metnað í að veita framúrskarandi þjónustu.
Þín helstu verkefni væru:
- Samskipti við viðskiptavini Öskju
- Ráðgjöf og tilboðsgerð
- Samvinna við þjónustuteymi verkstæðis
- Frágangur verkbeiðna og reikningagerð
- Eftirfylgni með þjónustuverkefnum og upplýsingagjöf til viðskiptavina
- Önnur tilfallandi verkefni tengd þjónustu og rekstri
Hæfniskröfur:
- Rík þjónustulund og framúrskarandi samskiptahæfni
- Færni í teymisvinnu og jákvætt viðmót
- Reynsla af sambærilegum störfum er kostur
- Góð tölvukunnátta og færni til að tileinka sér ný kerfi
- Góð íslensku- og enskukunnátta í ræðu og riti
- Skipulögð og sjálfstæð vinnubrögð
- Metnaður til að veita framúrskarandi þjónustu
Ekki hika við að sækja um
Hljómar þetta eins og starf fyrir þig? Sendu okkur endilega umsókn, jafnvel þótt þú uppfyllir ekki öll skilyrðin sem við leitum að. Þú gætir verið rétti einstaklingurinn í þetta starf eða annað tækifæri innan Inchcape Ísland.
Tækifæri fyrir öll
Við viljum skapa fjölbreyttan vinnustað þar sem ólík reynsla, bakgrunnur og sjónarmið fá að njóta sín. Þess vegna hvetjum við öll sem hafa áhuga á starfinu til að sækja um.
Inchcape Ísland býður upp á
Hjá Inchcape horfum við til framtíðar og viljum hafa okkar fólk með í þeirri vegferð. Við leggjum áherslu á gott samstarf, vellíðan og vinnuumhverfi þar sem ólíkt fólk fær tækifæri til að vaxa og þróast.
Hjá okkur færðu tækifæri til að takast á við fjölbreytt verkefni, byggja upp þekkingu og þróast í starfi bæði hér heima og sem hluti af alþjóðlegu fyrirtæki.
Um Öskju
Askja er sölu- og þjónustuumboð fyrir Mercedes-Benz, Kia, Honda og smart. Hjá Öskju starfar vel þjálfaður og öflugur hópur starfsfólks, en virk þjálfun og endurmenntun starfsfólks er í samræmi við gæðastaðla birgja. Askja er dótturfélag Inchcape á Íslandi ásamt Landfara, Dekkjahöllinni og Bifreiðaumboðinu Unu.
Nánari upplýsingar um Öskju má finna á www.askja.is .
Um Inchcape
Inchcape er leiðandi alþjóðlegt fyrirtæki í dreifingu og sölu bifreiða og starfar á mörkuðum um allan heim. Við vinnum með mörgum af stærstu vörumerkjum bílaiðnaðarins og leggjum áherslu á að þróa lausnir sem styðja við sjálfbærari samgöngur til framtíðar.
Hjá Inchcape starfa þúsundir starfsmanna um allan heim. Við leggjum áherslu á fjölbreytileika, gott samstarf og vinnuumhverfi þar sem fólk fær að njóta sín, með það að markmiði að skapa góða upplifun fyrir viðskiptavini okkar og samstarfsaðila.
Nánari upplýsingar
Um er að ræða framtíðarstarf.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Gylfi Þór Sigþórsson, aðstoðarþjónustustjóri Kia og Honda, á netfanginu [email protected]